tag:blogger.com,1999:blog-75382642024-03-05T20:14:15.213+00:00VefspjöllHugleiðingar um stjórnmál og önnur málBenedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.comBlogger62125tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-20977309824081265032011-03-22T17:15:00.007+00:002011-03-22T18:12:08.430+00:00Hreinsun
Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason sögðu sig úr þingflokki VG í gær. Farið hefur fé betra. Þau ættu auðvitað að víkja af þingi í kjölfarið, en þráast við og bera við eftirspurn. Líklega væri hún aðallega bundin við áhuga þeirra sem vilja valda ríkisstjórninni sem mestum skaða.
Ástæður úrsagnanna voru næsta fátæklegar; einkum þær að ekki hafi verið hlustað á tillögur þeirra í þingflokknum. Þingflokksformaður VG heldur öðru fram og víst er að enginn þingmaður VG hefur tekið undir þennan málflutning. ENGINN. Eftir stendur þá að þau skötuhjúin hafa ekki getað þolað þá lýðræðislegu niðurstöðu sem varð raunin. Fólk sem hefur alltaf rétt fyrir sér og getur ekki tekið því að verða undir í málamiðlunum eða lýðræðislegri niðurstöðu á ekkert að vera í samkrulli með öðrum. Lilja er doktor í hagfræði og finnst að hún eigi að ráða ferðinni í efnahagsmálum í VG. Samflokksmenn hennar eru ekki sammála og hún getur ekki tekið því.
Dúettinn kvartar undan foringjaræði. Ætli hann hefði ekki dáið drottni sínum undir Davíð Oddssyni. Daprastar voru þó ásakanirnar um skert málfrelsi. Eins og Steingrímur J. Sigfússon benti réttilega á, þá hefur ekki orðið vart við að Lilja Mósesdóttir hafi ekki getað tjáð sig að vild.
Atli nefndi að samflokksmenn hans ætluðu greinilega ekkert að læra af Rannsóknarskýrslu Alþingis. Ginnheilagur maður Atli - eða hvað? Hann hafði varla sleppt orðinu þegar stjórn kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi, hans eigin kjördæmi, opinberaði vonbrigði sín með að Atli skuli ekki hafa rætt fyrirætlanir sínar við stofnanir og grasrót flokksins í kjördæminu. Eru þetta vinnubrögð í anda Rannsóknarskýrslunnar? Eðlilega telur stjórnin að um trúnaðarbrest sé að ræða þannig að Atla Gíslasyni sé ekki lengur sætt í umboði kjósenda VG á Suðurlandi. Ennfremur lýsir stjórnin yfir stuðningi við ríkisstjórn VG og Samfylkingar, svona til að undirstrika hversu ósammála hún er málflutningi Atla. Það er því ljóst að Atli er í rauninni umboðslaus maður og ætti að segja af sér þingmennsku hið snarasta og kalla til varamann sinn.
En Atli þverskalli segir yfirlýsingu kjördæmisráðsins engu breyta, hann ætli að sitja áfram á þingi um sinn. Þetta er maðurinn sem vitnar í Rannsóknarskýrslu Alþingis og átelur félaga sína fyrir vond vinnubrögð - gott ef ekki spillt. Þetta er maðurinn sem kom í veg fyrir að einkavinavæðing Sjálfstæðismanna og Framsóknar á bönkunum yrði rannsökuð á vegum þingmannanefndarinnar sem hann veitti forstöðu. Hann ætlar félögum sínum illt, en er sjálfur heilagur. Veruleikafirrt sjálfsupphafning Atla blasir við.
Spegill og bergmál hentar svona fólki best. Vonandi verður nú vinnufriður til nauðsynlegra verka.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-73891103757794671662010-04-12T13:31:00.000+00:002010-04-28T13:41:32.046+00:00Bókstafstrúarmenn
Í fréttum kemur orðið bókstafstrúarmaður ósjaldan fyrir og tengist þá gjarnan trúarafstöðu manna. En það eru til annars konar bókstafstrúarmenn. Þeir hafa komið sér upp umræðuaðferð, sem sver sig í ætt við þrætubók og orðhengilshátt, og trú á bókina. Þegar álitamál koma upp seilast þeir í bókina, líta í hana og segja: þetta stendur ekki í bókinni, eða: það stendur ekki í bókinni að þetta sé bannað og þess vegna má ég. Hið síðarnefnda einkenndi útrásina sem sendi okkur aftur heim.<o:p></o:p>
Maria Elvira Mendez Pinedo, kennari við Háskóla Íslands, vakti athygli á því í Silfri Egils að í íslensku lagaumhverfi sé mikil trú á bókstafinn. Í Evrópurétti, sem hún er sérfræðingur í, er meira skyggnst fram í tímann og einnig hugað að siðferðinu á bak við bókstafinn. Þar þykir rétt að lög séu í sífelldri endurskoðun - séu dýnamísk, eins og lífið sem festist ekki í handbremsu á Hringbrautinni. Mér hefur oft virst að íslenska stjórnkerfið, sem er allt meira og minna gegnsýrt af lögfræðingum frá Háskóla Íslands, horfi um of á bókstafinn, en hafi að sama skapi takmarkaða yfirsýn yfir fólkið, þarfir þess og samfélagið sem það myndar. Í samspili lífs og laga trúi ég að hin geðþekka Maria Elvira Mendez Pinedo geti kennt okkur eitt og annað og er það gleðiefni að hún veiti endurnærandi evrópskum, jákvæðum straumum um lagadeild Háskóla Íslands.
Allir sem hafa lesið góðar bókmenntir þekkja að ósjaldan býr eitthvað að baki bókstafnum. Þetta eitthvað getur verið margvíslegt, en fyrst og fremst er það lífið sjálft. Lagareglur eru mannanna verk og geta því aðeins þjónað því lífi sem við lifum að þær taki mið af því. Á bak við bókstafinn býr mannlegur veruleiki sem þarf að vega og meta um leið og reglan er lesin því annars er bókstafurinn dauður og reglan tilgangslaus. Lögin eiga að þjóna fólkinu, en ekki öfugt. Bækur geta aukið lífsyndi okkar til muna, en lífinu verður þó ekki lifað eftir bókum hversu gott og göfugt það er sem í þeim stendur.<o:p></o:p>
Úr fréttum og umræðum liðinnar viku má lesa að forstjóri Sjúkratryggingastofnunar hafi stympast við ráðherra heilbrigðismála um framkvæmd tiltekinnar reglugerðar sem ráðherrann segir skýra, en forstjórinn sér meinbugi á framkvæmd hennar og leitar til Ríkisendurskoðunar um ráð. Vegna þess sendir ráðherrann forstjóranum bréf og hótar áminningu. Bæði ráðherrann og forstjórinn starfa fyrir framkvæmdavaldið. Ríkisendurskoðandi, sem starfar fyrir löggjafarvaldið, ritar yfirmanni sínum, forseta Alþingis, bréf, segir aðgerðir ráðherrans „ólíðandi“ og að það sé alvanalegt að ríkisforstjórar sæki til sín ráð. Stjórnsýslufræðingur bloggar um þessi ummæli ríkisendurskoðandans og telur að þau setji „hugmyndina um sjálfstæði Ríkisendurskoðunar í uppnám“ þar sem þessi sama Ríkisendurskoðun gæti seinna þurft að fjalla um þessa sömu stofnun og þar með eigin ráðleggingar. Niðurstaða stjórnsýslufræðingsins er að bréf ríkisendurskoðanda beri „ekki aðeins vott um skort á góðri stjórnsýslu, heldur staðfestir hún hversu útbreidd óvönduð stjórnsýsla er á Íslandi.“
Hér er á ferðinni spennandi álitamál sem varðar samskipti framkvæmdavalds og löggjafarvalds, eftirlit með góðum rekstri og stjórnsýsluháttum, samskipti ráðherra og forstjóra ríkisstofnunar og þar með valdmörk. Hér er með öðrum orðum feitt á stykkinu; efniviður í fróðlega og málefnalega umræðu sem gæti skilað okkur áleiðis til betri stjórnsýslu og öflugra lýðræðis.<o:p></o:p>
Þorsteinn Pálsson ákveður að blanda sér í þessa umræðu í Fréttablaðinu (10. apríl 2010, bls 18). Þorsteinn er nokkuð dæmigerður bókstafstrúarmaður af þeirri gerð sem vikið var að hér í upphafi, enda hefðbundinn íslenskur lögfræðingur, menntaður í lagadeild Háskóla Íslands. Hann skrifar reglulega greinar í Fréttablaðið, sem hann ritstýrði einu sinni, og tekur þess vegna þátt í því að móta umræðuna. Það má því með réttu gera til hans nokkrar kröfur um bitastæð framlög. Eins og vænta mátti fer Þorsteinn nákvæmlega eftir aðferð bókstafstrúarmanna í þessu efni, grípur lögbókina, þylur bókstafinn og kemst að niðurstöðu:
Í bókinni stendur að forstjórinn sé góður, en forsætisráðherrann vondur.<o:p></o:p>
Það er ekki mikill safi í svona visnum greinum. En þetta er dæmigerð íslensk umræða sem skilar engu.
<o:p> </o:p>
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-1525494801965532012010-01-05T17:17:00.006+00:002011-03-22T18:02:32.943+00:00Synjun forsetans
Hinn 30. desember 2009 samþykkti Alþingi Íslendinga með 33 atkvæðum gegn 30 lög um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf.
Í morgun neitaði forseti Íslands að staðfesta þessi nýju lög.
Persónulega er ég afar ósáttur við þessa ákvörðun forsetans, þótt ég véfengi ekki að 26. gr. stjórnarskrár Íslands veiti honum rétt til að taka slíka ákvörðun, enda mun það orðið óumdeilt meðal fræðimanna í stjórnskipunarrétti eftir því sem Eiríkur Tómasson lagaprófessor sagði í sjónvarpinu í morgun.
Að mínu viti tók forsetinn ranga ákvörðun og í yfirlýsingu hans eru mikilvægir veikleikar að mínu mati.
Það er ekki ástæða til þess að vísa öllum málum í þjóðaratkvæðagreiðslu og milliríkjasamningur af þessu tagi er ekki til þess fallinn. Þetta hafa ýmsir bent á og síðast Eiríkur Tómasson í morgun. Þetta hefði forsetinn mátt íhuga og taka afstöðu til í yfirlýsingu sinni.
Mér finnst forsetinn gera of mikið úr þeim áskorunum sem InDefence hefur safnað, þar sem framkvæmd þeirrar söfnunar hefur verið vægast sagt vafasöm. Þá var spurningin sem lögð var fyrir fólk villandi því gefið var í skyn að tekist væri á um hvort borga ætti Icesave skuldir eða ekki. Slíkir valkostir eru raunverulega ekki í boði. Með því að taka mark á svona framkvæmd er forsetinn að gera óvönduðum vinnubrögðum óþarflega hátt undir höfði og skapa slæmt fordæmi sem lýðskrumarar gætu vísað til og nýtt sér.
Í yfirlýsingu forseta segir: „Þá sýna yfirlýsingar á Alþingi og áskoranir sem forseta hafa borist frá einstökum þingmönnum að vilji meirihluta alþingismanna er að slík þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram.“ Þetta er tvímælalaust veikasti hlekkurinn í röksemdafærslu forsetans. Alþingi hafnaði þjóðaratkvæðagreiðslu um málið í sérstakri atkvæðagreiðslu. Það er því fráleitt að taka óljósar yfirlýsingar einstakra þingmanna fram yfir þá samþykkt sem liggur fyrir.
Og hver er þá staðan eftir synjun forsetans? Við sitjum uppi með lausn (lög nr 96/2009) sem viðsemjendur okkar (Bretar og Hollendingar) hafa hafnað; með öðrum orðum: enga lausn. Við munum ekki sækja gull í greipar Breta sem eru að fara í kosningar og myndu fagna því að fara í slag við okkur um Icesave. Hollendingar eru ekki árennilegir heldur. Og Icesave hverfur ekki, eins og fjármálaráðherra hefur margsagt.
Synjun forsetans hefur því sett endurreisnarstarf réttkjörinnar ríkisstjórnar landsins í mikið uppnám að ástæðulausu og gert leiðina út úr kreppunni erfiðari en hún hefði þurft að vera. Það var mikið óþurftarverk.
Ég er sammála Eiríki Tómassyni um að í þessari stöðu væri best að ríkisstjórnin drægi lögin til baka og leitaði eftir að fá traustan erlendan aðila til að gerast sáttasemjari í þessari deilu. Og þá getum við bara vonað að kostir okkar verði ekki verri en okkur stóðu til boða fyrir klukkan ellefu í morgun.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-55677630593381927272009-02-13T08:45:00.002+00:002009-02-13T08:48:33.627+00:00Eftirmæli Geirs - hans eigin orðBenedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-12110546383052285802008-12-05T18:26:00.003+00:002008-12-06T16:04:02.407+00:00Rúnar Júlíusson - In memoriam
Ísland hefur bara átt einn virkilegan töffara. Og núna er hann allur.
Það er krepputíð, en öll él birtir upp um síðir.
En það verður aldrei til nema einn Rúnar Júlíusson.
(Sjá þetta blog í tilefni sextugsafmælis Rúnars).Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-27658542334810742962008-10-16T08:45:00.018+00:002011-03-22T18:05:01.847+00:00Go down Mr. Brown!
Áhrifin virðast ætla að verða enn víðtækari því gengi pundsins hefur fallið töluvert gagnvart dollara og jeni af því að menn hafa áhyggjur af deilu Íslendinga og Breta.
Þetta dæmi ætti að vera misvitrum stjórnmálamönnum á lágu siðferðisplani til viðvörunar um að falla ekki stundarfreistni eigingirninnar og fálma í hálmstrá frekar en að koma hreint fram og taka afleiðingum gjörða sinna.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-74038835347085873552008-10-09T22:52:00.002+00:002018-08-10T18:13:35.901+00:00Erfið samskipti við BretaSamskipti Íslendinga og Breta hafa hríðversnað á fáum dögum og svo virðist sem um einhvern misskilning sé að ræða. Baldur McQueen varpar athyglisverðu ljósi á þetta á bloggi sínu og bendir á að Tryggvi Þór Herbertsson hafi 4. október fullyrt „að íslenska ríkið muni taka ábyrgð á sínum hluta innlána á IceSave“. Íslenska ríkið hafi svo daginn eftir sent út yfirlýsingu þar sem „lofað er að ríkið muni taka ábyrgð á sínum hluta innlána á IceSave“. Síðan kemur óljóst viðtal við Össur Skarphéðinsson á mánudag, síðan símtal Árna Mathiesen og Alistair Darling á þriðjudag þar sem Árni „virðist hafa sett einhverja fyrirvara á aðkomu Íslands, ef ekki beinlínis afneitað henni“. Svo kemur hið dæmalausa viðtal við Davíð Oddsson á þriðjudagskvöldið og daginn eftir segir Alistair Darling að Íslendingar ætli ekki að standa við skuldbindingar sínar. Á fjármálavefnum Fool.co.uk er þessu lýst svona:
„The Chancellor also revealed that he had spoken to Iceland’s finance minister yesterday and been told that Iceland wouldn’t compensate UK savers in Iceland. Darling was clearly angered by this answer.“
Þetta verður tæplega skilið öðruvísi en svo að Árni Mathiesen hafi verið myrkur í máli í símtalinu við Alistair Darling svo ekki sé fastar að orði kveðið.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-19050990575162170472008-10-09T07:21:00.025+00:002008-10-09T18:29:00.968+00:00Brennuvargurinn í Seðlabankanum
Undanfarna daga hefur mikið gengið á í fjármálaumhverfi heimsins og Ísland hefur ekki farið varhluta af því. Rótgróin og traust fjármálafyrirtæki eins og Lehman Brothers og Merrill Lynch í Bandaríkjunum hafa farið á hausinn eða verið yfirtekin. Algjör lausafjárþurrð hefur verið á fjármálamörkuðum um allan heim. Þetta ástand hefur leitt til þess að íslensku bankarnir hafa átt í erfiðleikum með nauðsynlega endurfjármögnun og því lent í vandræðum.
Þetta er ærinn vandi við að etja. En íslensku bankarnir hafa átt við annan séríslenskan vanda að etja. Verðbólga og stýrivextir eru hærri hér en í nágrannalöndunum og í Seðlabanka Íslands situr gjörsamlega óhæfur maður á æðsta tróni, afdankaður uppgjafapólitíkus sem hefur skrúfað upp laun sín í öfugu hlutfalli við getu sína til að gegna því starfi sem hann tók sér. Þessi maður ber öðrum fremur ábyrgð á því að í dag eru þrír stærstu bankar landsins orðnir ríkisbankar aftur og hluthafar þeirra, m.a. lífeyrissjóðir landsmanna, hafa tapað stórfé.
Um miðja 30. viku leitaði stjórnarformaður Glitnis til formanns bankastjórnar Seðlabankans og óskaði eftir láni vegna þess að lánamöguleikar bankans höfðu allt í einu lokast og á næsta leiti var gjalddagi. Á einni helgi var ríkið búið að kaupa 3/4 hluta bankans á gengi undir 2, þegar gengi bankans var 15,7 föstudeginum á undan. Formaður bankastjórnar Seðlabankans talaði um að ef ríkið hefði ekki gripið inn í með þessum hætti hefði Glitnir orðið gjaldþrota. Svona eiga seðlabankastjórar auðvitað ekki að tala; þetta hjal var vægast sagt heimskulegt, sem og aðgerðin öll, eins og kom á daginn í vikunni á eftir.
Næsta vika var hörð barátta fyrir bankana og eftir síðustu helgi yfirtók ríkið Landsbankann. Þriðjudaginn 7. október kemur svo seðlabankastjóri í viðtal í Kastljósi og lætur þar gamminn geisa og eys svívirðingum á báða bóga, kallar veð þau sem Glitnir bauð „ástarbréf“ og bankamenn „óreiðumenn“. Ennfremur fullyrti hann að Ísland ætlaði ekki að borga erlendar skuldir bankanna, heldur einungis ábyrgjast íslenska sparifjáreigendur og almenning. Afleiðingar þessa gaspurs lét ekki á sér standa. Næsta dag mátti íslenski forsætisráðherrann hafa sig allan við að róa Breta sem hugðu á málsókn gegn okkur fyrir að standa ekki við tryggingar okkar gagnvart breskum sparifjáreigendum. Eignir Landsbankans í Bretlandi voru frystar og einnig ráðist gegn Kaupþingi. Í nótt yfirtók fjármálaeftirlitið Kaupþing. Þar með eru allir hinir einkavæddu bankar aftur orðnir ríkisbankar.
Eins og áður segir var við mikinn vanda að etja, en aðgerðir Seðlabankans og orðræða seðlabankastjórans hafa án efa riðið baggamuninn um framvindu atburða. Eftir að ákveðið var að gera Glitni að ríkisbanka að tveimur þriðju hefur leiðin legið beint niður á við. Um tíma virstist Kaupþing banki ætla að halda velli, enda staða hans sýnu betri en hinna bankanna, en seðlabankastjóra tókst að ganga frá honum í Kastljósviðtalinu. Eðlilegt er að spurt sé hví í ósköpunum seðlabankastjóri mætir í viðtal í dægurmálaþætti í verstu bankakrísu sem uppi hefur verið. Hefur þetta verið háttur kollega hans í öðrum löndum? Enn furðulegra er hversu „frjálslega“ hann talaði þar.
Eftir þjóðnýtingu Glitnis sagði Richard Portes, prófessor við London Business School, að seðlabankastjóri hefði „lagt trúverðugleika íslensks efnahagslífs í rúst“. Og ennfremur:
„Sú ákvörðun að neyða Glitni í þjóðnýtingu var slæm og ónauðsynleg. Hið raunverulega neyðarástand íslenska hagkerfisins hófst með þjóðnýtingunni. Sá verknaður, og hin fráleitu ummæli Davíðs Oddssonar um að aðrir bankar kynnu að hljóta sömu örlög, ættu ekki að heyrast frá neinum seðlabankastjóra“
Þessi orð Portes hafa reynst orð að sönnu. Það er fyrir löngu orðið tímabært að skipta um bankastjórn Seðlabankans. Margir sérfræðingar hafa viðrað þá skoðun, m.a. Þorvaldur Gylfason, Jón Daníelsson (sjá einnig þetta), Guðmundur Ólafsson og fleiri. Á vef Market Watch sem gefið er út af Wall Street Journal er gert grín að seðlabankastjóra fyrir frumhlaup hans varðandi Rússalánið. Er ekki nóg komið af þessari vitleysu? Við þurfum á öðru að halda einmitt núna.
Það var kaldhæðnislegt að seðlabankastjóri skyldi velja sér myndlíkingar um bruna og brennuvarga í sínu dæmalausa Kastljósviðtali. Augljóst er hver er hinn raunverulegi brennuvargur í íslensku fjármálaumhverfi. Verra er að hann þykist vera slökkviliðsmaður, en sprautar olíu á eldinn.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-53987337466449467272008-05-22T02:26:00.009+00:002008-05-22T09:58:01.946+00:00John Fogerty í LaugardalshöllTónleikarnir hans John Fogerty í Laugardalshöllinni 21. maí 2008 voru meiriháttar! Hann lét svolítið bíða eftir sér strákurinn, sirka þrjú korter eða svo, en svo kom hann á svið með þetta líka dúndur band og síðan var ekki slegið af en keyrt á fullu í tvo tíma stanslaust. Á þeim tíma tók hann mörg af gömlu góðu CCR lögunum, Bad moon rising, Susie Q, Who’ll stop the rain, Commotion, Down on the corner, Travelin’ band, Run through the jungle, Lookin’ out my back door, I heard it through the grapewine (með löngum og dásamlegum impróvision kafla), Good Golly Miss Molly, Wrote a song for everyone, Cotton fields, ofl ofl. Þegar hann taldi í Have you ever seen the rain ætlaði allt að verða vitlaust í höllinni og hann fylgdi því eftir með fleiri góðum lögum eins og The Midnight special. Þegar hann var klappaður á svið tók hann Rockin’ all over the world af þrumukrafti sem lyfti þakinu á Laugardalshöllinni.
Bandið hans er stórkostlegt. Baklandið er borið uppi af einhverjum besta trommara sem ég hef heyrt í (Kenny Aronoff, sem hefur reyndar trommað með helstu stórmennum rokksögunnar) og snilldar bassista (Dave Santos). Síðan eru tveir þéttir gítarleikarar (Hunter Perrin og Billy Burnette, sem lék með Fleetwood Mac á árunum 1987-1995) sem spila eins og englar, tveir þúsundþjalasmiðir sem spila á ýmis hljóðfæri eins og hljómborð, kassagítar, rafgítar (NN), slidegítar, mandólín og fiðlu (Jason). Fyrir þessari úrvalssveit fer svo snillingurinn John Fogerty sem aðal sólógítarleikari og söngvari sveitarinnar og sýndi og sannaði að hann er afburða gítarleikari sem hefur sinn sérstaka, dálítið þunglamalega, en hreina og tæra stíl og sánd sem enginn annar nær. Hann sagði víst einhvern tímann að rödd hans væri einstakt hljóðfæri og mér finnst að það hljóðfæri sé eins og Stradivarius og batni bara með aldrinum. Hann er einhver besti söngvari rokksögunnar að mínu mati. Tímaritið Rolling Stone hefur sett hann í 40. sæti yfir bestu gítarleikara allra tíma. Það var því enginn aukvisi sem steig á svið Laugardalshallarinnar klukkan 21:50 miðvikudagskvöldið 21. maí 2008.
Líf John Fogerty hefur ekki alltaf verið dans á rósum þó að það hann dansaði með hvern gítarinn á fætur öðrum um sviðið í Laugardalshöllinni í kvöld eins og unglingur. Í bláköflóttri skyrtu og gallabuxum, grannur og spengilegur, spilaði hann eins og sá sem valdið hefur og stjórnaði hljómsveitinni eins og herforingi. Eftir slétta viku heldur hann upp á 63 ára afmælið sitt og hefur á þeim tíma marga fjöruna sopið.
John fæddist í Berkeley í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum 28. maí 1945. Seint á sjötta áratugnum stofnaði hann hljómsveit ásamt eldri bróður sínum, Tom Fogerty (1941-1990), Doug Clifford og Stu Cook. Hljómsveitin hét upphaflega Tommy Fogerty and the Blue Velvets, breytti um nafn 1965 og kallaðist The Golliwogs. Árið 1968 sló sveitin loks í gegn með laginu Susie Q eftir John Fogerty og hafði þá fengið nafnið Creedence Clearwater Revival (CCR). Síðan kom hver smellurinn eftir annan úr smiðju John Fogerty þar til sveitin leystist upp um 1972, aðallega vegna óánægju hljómsveitarmeðlima með velgengni John Fogerty.
Ári seinna hóf John sólóferil sem hefur staðið allar götur síðan. Sá ferill hefur alls ekki verið sléttur og felldur og John hefur marga hildi háð, m.a. í réttarsölum vegna laga sinna. Ágreiningur reis með þeim bræðrum, John og Tom, sem aldrei jafnaðist og lagðist þetta ástand þungt á John ekki síst þegar Tom bróðir hans andaðist úr berklum árið 1990. Árið 1993, þegar CCR tekin inn í Rock and Roll Hall of Fame, neitaði John að spila með fyrrum félögum sínum úr CCR, Stu Cook og Doug Clifford, en lék þess í stað þrjú CCR lög, Who'll Stop The Rain, Born On The Bayou og Green River með Don Was (á bassa), Robbie Robertson (á gítar), Jim Keltner (á trommur) og Bruce Springsteen (söngur og gítar). Þetta segir kannski meira en mörg orð um samkomulagið í CCR undir það síðasta.
Á sólóferli sínum hefur John Fogerty a.m.k. tvisvar sinnum átt frábærar innkomur á rokksviðið og á allra síðustu árum hefur hann notið mikillar velgengni. Nýjasta platan hans, Revival, kom út 2. október 2007 og var hún tilvefnd til Grammy verðlauna 2008. Fogerty hefur fylgt henni eftir með hjómleikaferð um Ástralíu og núna um Evrópu. Á fimmtudaginn spilar hann í Stokkhólmi og þaðan geysist þessi hæfileikaríki reynslubolti um Evrópu þvera og endilanga, heldur síðan til Bandaríkjanna og telur í síðasta lagið í Aspen, Colorado, 31. ágúst 2008.
John Fogerty og Grímur Atlason: hjartans þakkir frá okkur Stebba.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-37728301138490016512008-04-24T21:06:00.007+00:002008-04-25T00:29:02.606+00:00LygalaupurÍ dag kom til átaka þegar vörubílstjórar hugðust sækja haldlagða bíla sína til lögreglu. Skyndilega veittist maður að lögreglumanni og kýldi hann í andlitið. Sturla Jónsson, sem komið hefur fram að undanförnu sem talsmaður vörubílstjóra í mótmælaaðgerðum, sagði við þetta tækifæri að maðurinn væri ekki vörubílstjóri heldur vegfarandi. Í þessari frétt af vísir.is kemur í ljós að þarna fór Sturla vísvitandi með ósannindi.
Eftirfarandi orðaskipti eru úr kvöldfréttatíma RÚV:
Ingólfur fréttamaður: Sturla veistu hver þessi maður var sem að réðist á lögreglumanninn?
Sturla: Nei ég er ekki alveg klár á því.
Ingólfur fréttamaður: Einhver af þínum helduru?
Sturla: Nei.
Á myndinni hér að ofan (sem birtist á visir.is) sést Sturla Jónsson með árásarmanninum, Ágústi Fylkissyni, sem er Sturlu á vinstri hönd.
Bróðir árásarmannsins er ósáttur við „að atvinnubílstjórar segist ekki kannast við bílstjórann þar sem hann sé einn þriggja nafngreindra talsmanna hópsins í fjölmiðlum“ (sjá nánar hér).
Sturla Jónsson er ekki aðeins lítilmótlegur gasprari heldur ómerkilegur lygalaupur. Með svona talsmann þurfa vörubílstjórar ekki á óvinum að halda.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-1113478060911530782008-04-24T14:37:00.009+00:002008-04-24T15:19:33.726+00:00Vondslega hafa oss bílstjórar blekktVörubílstjórar hafa undanfarna daga haft uppi mótmæli með því að stífla alfaraleiðir með atvinnutækjum sínum. Í upphafi var látið í veðri vaka að ástæðurnar væru hækkandi eldsneytisverð og reglur um hvíldartíma.
Við sem ökum um mjóslegna vegi þessa lands höfum ekki áhuga á að mæta stórkeröldum með syfjaða ökumenn við stýrið og þess vegna á að virða þessar reglur; þær eru nauðsynlegar. Það væri meiri ástæða til að mótmæla því að samgönguráðherra sé að reyna að fá þær rýmkaðar vegna þrýstings frá vörubílstjórum. Ég hef ekið um Ísland þvert og endilangt og aldrei verið í vandræðum með að komast á salerni, fá mér hressingu eða hvíla mig. Ég blæs því á þus bílstjóranna um aðstöðuleysi.
Eldsneytisverð hefur hækkað á heimsmarkaði og einnig hefur gengi íslensku krónunnar fallið. Af þessu leiðir hærra verð fyrir eldsneytið. Stöð 2 greindi frá því í fréttatíma að eldsneytisverð hér á landi væri með því lægsta sem gerist á Norðurlöndunum og hlutur ríkisins minnstur hér í samanburði við grannþjóðirnar. Ef opinberar álögur á eldsneyti verða lækkaðar getur það ekki leitt af sér annað en niðurskurð annars staðar. Slík lækkun kemur helst stórnotendum til góða, en síður þeim sem aka um á venjulegum fólksbílum. Þar með var ekki lengur innistæða fyrir neinni samúð með trökkdræverum. Hagsmunir þeirra eru öndverðir hagsmunum hins almenna launamanns.
Þessir menn eru að villa á sér heimildir. Þeir eru ekki launþegar hjá öðrum. Þetta eru verktakar sem eiga og reka sína bíla sjálfir. Hinn almenni launamaður á enga samleið með þeim. Spyrja má af hverju þeir hækki ekki taxta sína til að mæta hækkandi kostnaði? Svarið gæti verið að þeir séu í bullandi samkeppni hver við annan.
Aðgerðir vörubílstjóranna hafa fyrst og fremst bitnað á almennum borgurum og á stundum stofnað þeim í hættu. Þetta eru nákvæmlega sömu aðferðir og hryðjuverkamenn nota, enda eru þetta hryðjuverk. Lögreglan hefur sýnt þeim óvenju mikið langlundargeð og í raun hefði átt að vera búið að stoppa þessa vitleysu fyrir löngu.
Þessar aðgerðir ber að fordæma og framganga forsprakkans, Sturlu Jónssonar, er honum til háborinnar skammar. Hann hefur þröngan málstað sérhagsmuna að verja, en þykist vera frelsari þjóðarinnar. Hann slær um sig með óljósum frösum og bulli ef hann er krafinn svara. Þetta var opinberað öllum landslýð í Kastljósi í gærkvöldi. Hann hefur enga innistæðu fyrir því að segjast hafa þjóðina á bak við sig. Því fer víðsfjarri!Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-51195939305083934042008-02-12T15:47:00.000+00:002008-02-12T18:01:41.381+00:00Einn (en ekki aleinn)Einn. Gamli góði Villi mætti fjölmiðlamönnum í gær einn síns liðs. Sexmenningarnir fræknu, sem segjast þó styðja hann, læðupokuðust út um hinar og þessar útgönguleiðir Valhallar og forðuðu sér frá áleitnum og erfiðum spurningum fréttamanna. Skildu gamla manninn eftir einan hjá úlfunum.
Einn. Þegar gengið var á þá sjálfstæðismenn sem í náðist eftir Valhallarfundinn í gær örlaði hvergi á stuðningi við verðandi borgarstjóra Reykjavíkur. Þeirra á meðal var forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Einn. Úr leiðurum blaðanna, Morgunblaðið ekki undanskilið, barst heldur ekki neinn stuðningur.
Einn. Á bloggsíðunum fór ekki mikið fyrir stuðningsyfirlýsingum, ekki einu sinni frá sjálfstæðismönnum.
Ekki aleinn. Einn vill þó bera blak af Vilhjálmi: Árni Johnsen. Hann treystir gamla góða Villa og er búinn að átta sig á því að hann hefur bara verið valinn sem fórnarlamb; svona rétt eins og Árni sjálfur forðum daga. Þeir Villi gerðu ekki neitt rangt; einhver ákvað bara að leiða þá til slátrunar – líklega fjölmiðlamenn.
Þeir eiga það sameiginlegt flokksbræðurnir að þeir lentu í þessu.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-77240673122411158822008-02-12T09:46:00.000+00:002018-08-16T22:50:31.622+00:00Að velta röngu og svíkja lit
Stundum er umgengni manna um staðreyndir með miklum ólíkindum. Þeir mega vart sannleikskorn sjá á förnum vegi án þess að þurfa að rangsnúa því, teygja það, toga og afbaka. Þetta er að verða sérstök listgrein hjá vissum hópi sjálfstæðismanna.
Þannig fer Pétur Blöndal með sömu tugguna hvað eftir annað í fjölmiðlum. Að Tjarnarkvartettinn hafi sótt Binga inn í raðir þess meirihluta sem myndaður var eftir kosningarnar 2006 og því sé enginn munur á meirihlutaskiptum í haust og núna í janúar. Það liggur hins vegar fyrir og má lesa í fjölmiðlum að upp kom ágreiningur á milli Sjálfstæðismanna, sem vildu selja REI, og Binga sem ekki vildi selja. Hanna Birna orðaði þetta einhvern veginn þannig á tröppunum hjá Villa að Bingi hefði ekki viljað fallast á þeirra sjónarmið. Hún virtist ekki hafa áttað sig á því í tíma að staðan var ekki sjö gegn einum, heldur hafði Bingi fjöregg meirihlutans í hendi sér. Að lesa ekki stöðuna betur en þetta getur ekki verið ávísun á forystuhlutverk í stjórnmálum.
Á hinn bóginn fór Ólafur Friðrik yfir til Sjálfstæðismanna í janúar án nokkurs ágreinings við þann meirihluta sem hann var guðfaðir að. Sjálfstæðismenn buðu honum hins vegar borgarstjórastól og rýmdu fúslega fyrir málefnalista Ólafs með því að ýta sínum eigin út af borðinu. Hanna Birna mátti til dæmis éta ofan í sig skipulagsmálin og Gísli Marteinn flugvöllinn. Allt til að ná völdum á ný. En hvílíkur Phyrrosarsigur!
Það sér auðvitað hver maður að þarna er allnokkur munur á og ég er viss um að Pétur Blöndal sér það líka, því mér dettur ekki í hug að frýja honum vits. En þess meira gruna ég hann um gæsku sem ég heyri hann oftar tönnlast á sínum heimatilbúnu öfugmælum um þessa atburðarás.
Og svo er það garmurinn hann Villi. Lánlausari mann getur vart í íslenskri pólitík. Þetta er eiginlega átakanlegt upp á að horfa; eftir langan og nokkuð farsælan, en átakalítinn, feril sem borgarfulltrúi í Reykjavík og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga þá er hann skyndilega á berangri með allt niðrum sig. Ekki verður betur séð en að hann sé skólabókardæmi um Péturslögmálið (The Peter’s Principle) um að sérhver maður hafi tilhneigingu til að stefna hærra og fara fram úr getu sinni. Vilhjálmur hefur vafalaust verið ágætur borgarfulltrúi, en hann var afleitur borgarstjóri og það væri glapræði að hleypa honum í þann stól aftur.
En það er ekki nóg með að vesalings Villi hafi augljóslega farið fram úr getu sinni. Dómgreindin og siðferðiskenndin hafa algjörlega yfirgefið hann. Hann fer með ósannindi í fjölmiðla og heldur því fram í fullri alvöru að hann hafi axlað ábyrgð með því að missa borgarstjóra-stólinn síðastliðið haust. Ég treysti mér ekki til að lýsa þessari frammistöðu betur en sjálfstæðismaðurinn Dharma.
Nei, Villi, þetta kallast EKKI að axla ábyrgð, álfurinn þinn...
Það að þú skulir hafa misst borgarstjórastólinn er ekki dæmi um hvernig þú axlaðir ábyrgð. Þú misstir borgarstjórastólinn því samráðsmaðurinn hljóp í fangið á sósjalistunum! Þú hefðir glaður viljað sitja áfram.
Þú skilur þetta ekki. Ég stórefast hreinlega um að þú hafir gáfnafarið til að vera yfirhöfuð í stjórnmálum!
Það að þú skyldir missa borgarstjórasætið er AFLEIÐING þess sem þú gerðir. Þú axlaðir ekki eitt né neitt. Þú bara vældir og laugst í fjölmiðlum.
Það að AXLA ÁBYRGÐ hefði verið ef þú hefðir sagt af þér strax í október. Þá hefði frumkvæðið verið þitt. Það hefði verið að axla ábyrgð.
Þú getur EKKI sagt að þú hafir axlað ábyrgð þegar þér var sparkað úr stólnum í hvern þú áttir í sjálfu sér ekkert erindi til að byrja með. Þú hafðir hreinlega ekkert um málið að segja.
Þú ert í vinnu fyrir kjósendur, þú brást vinnuveitanda þínum og lýgur svo að honum til að hylja eigin spor. Slíkt er brottrekstrarsök, en því miður höfum við engin úrræði til að reka þig, önnur en að biðja þig um að segja af þér.
Þú ert líklegast mesti skúrkur íslenskra stjórnmála fyrr eða síðar. Þú ert valdasjúkur og veruleikafirrtur, þú berð nákvæmlega ekkert skynbragð á stjórnmál. Þú ert lítill kerfiskall sem skilur ekki hvert umboð þitt er. Mikil er skömm þín og þú átt enga, nákvæmlega enga, samúð skylda.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-45931528953085397472008-02-03T18:21:00.000+00:002018-08-16T22:54:15.520+00:00Björn vill dæma óþægilega umræðu úr leikBjörn Bjarnason var í Silfri Egils í gær og þar barst m.a. skipun dómara norðan og austan í tal. Björn segir um þessi orðaskipti á bloggsíðu sinni að Sigurður Líndal hafi...
<quote>„skrifað sig frá málinu, þegar hann hafi tekið til við að líkja stjórnarathöfn Árna M. Mathiesens við stjórnarhætti nasista – með slíku gerðu menn sig einfaldlega marklausa og þannig væri komið fyrir Sigurði Líndal í þessu máli.“</quote>
Í framhaldinu vitnar Björn síðan í mál Daniel Hannan, þingmanns á Evrópuþinginu fyrir breska íhaldsmenn, sem hafði „verið vikið úr þingflokki European People’s Party (EPP) á Evrópuþinginu fyrir ummæli, sem voru túlkuð á þann veg, að hann líkti gjörðum þingforseta við valdatöku nasista.“ Augljóst er að Björn leggur þessi mál að jöfnu þó að hann hirði það eitt upp af vefsíðu Hannan sem hentar hans málflutningi og þess vegna sleppir hann t.d. þessu:
<quote>My own Chief Whip, Den Dover, was kind enough to see me afterwards and reassure me that nothing I had said was against Conservative policy, that our party is strongly in favour of a referendum and that, in any case, we are all pledged to leave the EPP next year. If the EPP excluded me, he added, that was their business. As far as he was concerned, I would sit as a Conservative and a member of the Conservative delegation, in receipt of the Tory Whip and as a re-selected Tory candidate.</quote>
Með öðrum orðum: sínum augum lítur hver á silfrið; menn eru ekki á einu máli um réttmæti brottvikningar Hannan úr EPP. Og ekki eru íhaldsmenn á þeim buxunum að skipta út sínum manni.
En hvað sagði Sigurður Líndal? Í grein í Fréttablaðinu 15. janúar 2008 (bls 16) ræðir hann um leiðara Morgunblaðsins frá 10. janúar 2008 þar sem því er hafnað að tilvist dómnefndar setji veitingarvaldinu einhver takmörk, það komi ekki fram í lagatextum og nefndin sé að draga til sín vald sem hún hefur ekki. Um þetta segir Sigurður svo:
<quote>„Nærtækast væri að líta á þessi orð sem merkingarlaust rugl, en ef taka á mark á þeim eru lög ekki annað en tæki valds sem lýtur engum takmörkunum. Hér skín í taumlausa vildarhyggju þar sem einungis er áskilið að lög séu sett með formlega réttum hætti og þeim beri að framfylgja með valdi hvert svo sem efni þeirra er. Valdboðið er sett í öndvegi; annað látið víkja. Með þetta að leiðarljósi er alræði og geðþótta opnuð leið og eru nærtækust dæmin frá Þýzkalandi eftir 1930.“</quote>
Hér verður að ítreka að Sigurður er að ræða leiðara Morgunblaðsins og þau sjónarmið sem þar eru sett fram, en ekki gjörðir Árna Mathiesen, setts dómsmálaráðherra. Það er því rangt og útúrsnúningur hjá Birni að Sigurður sé að líkja stjórnarathöfnum Árna Mathisen við stjórnarhætti nasista.
Hins vegar er á það að líta að það verður að segja hverja sögu eins og hún er. Ef valdsmenn ganga fram með svipuðum hætti og nasistar gerðu á fjórða áratug síðustu aldar, þá er ekkert að því að segja það og það getur ekki dæmt neinn frá neinni umræðu, þó að Björn segi að svo skuli vera. Björn er hvorki hlutlaus né óskeikull dómari þar um og hefur ekkert umboð til að kveða upp slíkan dóm. Fullyrðingar hans í þá veru eru því með öllu marklausar og að engu hafandi. Hann er auðvitað að reyna að kveða niður óþægilega gagnrýni sem erfitt er að verjast með öðrum aðferðum en þeim bolabrögðum sem hann beitir.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-9073891329026653682008-01-28T10:49:00.000+00:002008-01-28T11:23:56.846+00:00Strámann og GrámannStyrmir Morgunblaðsritstjóri, sem hefur líklega aldrei náð sér eftir kalda stríðið, stundar í hverjum leiðaranum eftir annan leik sem sumir Sjálfstæðismenn hafa gert að viðteknum vinnubrögðum sínum síðustu misserin. Þessi leikur, sem má kannski best lýsa með orðtakinu „við skulum frekar en verða bit, velta röngu og svíkja lit“, hófst til sérstakrar virðingar í valdatíð Davíðs Oddssonar, sem lýsti einu afbrigði hans í sjónvarpsviðtali. Eftir það viðtal var komið nafn á þetta afbrigði: smjörklípuaðferð. Finnur Vilhjálmsson bregður nýju ljósi á þessa eftirlætisiðju Styrmis og hans nóta í athyglisverðri grein og þar kemur í ljós að aðferðin er þekkt úr úr rök- eða mælskulist og kallast að búa til strámann.
Styrmir hefur ítrekað haldið því fram að Samfylkingin standi á bak við sérstaka aðför sem hann segir gerða að Ólafi F. Magnússyni án þess að hann geri minnstu tilraun til að rökstyðja þessar fullyrðingar sem eru auðvitað algjörlega tilhæfulausar. Engir hafa verið duglegri að gera veikindi Ólafs að umræðuefni en einmitt Sjálfstæðismenn. Engu að síður situr Styrmir úti í móa og mótar sinn strámann af hatramri elju.
En það sitja fleiri við strámannsgerð en nátttröllið í Hádegismóum. Í öðru garðshorni situr Björn Bjarnason og tekur strámanni Styrmis fagnandi og gerir að sínum; grámanni. Björn reynir heldur ekki að styðja grámann sinn rökum, en fimbulfambar og fullyrðir út í eitt út frá þessum uppvakningi þeirra Styrmis. Þetta er heldur grátt gaman hjá þeim félögum og sýnir hversu ómerkilegur málflutningur þeirra er. Tilgangurinn helgar meðalið. Ég snýti mér í forakt.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-30481467745149229432008-01-24T09:29:00.000+00:002008-01-24T22:16:06.308+00:00Setjum stjórnmálamönnum siðareglurSífellt er talað um að stjórnmál snúist um traust og það get ég sannarlega tekið undir. En eru stjórnmálamenn trúverðugir og getum við treyst þeim? Hér eru fáein nýleg dæmi sem benda ekki til þess:
Rannsókn Center for Public integrity hefur leitt í ljós að George Bush og hans nótar létu frá sér fara 935 rangar yfirlýsingar á tveggja ára tímabili eftir 11. september 2001. Þessar yfirlýsingar snerust um hættu sem átti að stafa af Írak á valdatíma Saddam Hussain (sjá einnig hér). Stuðningur íslenskra stjórnvalda var m.a. rökstuddur með þessum röngu staðhæfingum.
Það hefur komið fram að Ólafur F. Magnússon, sem nýlega myndaði nýjan meirihluta í Reykjavík með Sjálfstæðisflokknum, fullyrti margsinnis bæði við Dag B. Eggertsson og Margréti Sverrisdóttur að ekkert væri til í sögusögnum um að hann stæði í meirihlutaviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn mánudaginn 21. janúar s.l. Nú er öllum ljóst að þar fór hann ekki með rétt mál.
Því hefur verið haldið fram að Vilhjálmur Vilhjálmsson og Kjartan Magnússon hafi sagt Ólafi að ef hann makkaði ekki með þeim, myndu þeir mynda meirihluta með VG. Vilhjálmur hefur neitað þessu (hver trúir honum eftir það sem á undan er gengið?), en Ólafur hefur sagt að hann hafi skilið umræðuna þannig að fleiri ættu möguleika á meirihlutamyndun með Sjálfstæðisflokknum en hann einn.
Skipun héraðsdómara fyrir norðan og austan hefur verið varin af dæmafárri ósvífni. Settur dómsmálaráherra hefur ráðist á dómnefndina í fjölmiðlum og forsætisráðherra segir á Alþingi Íslendinga að gagnrýni Sigurðar Líndal á þessa ráðstöfun sé honum til minnkunar. Er ekki verið að snúa öllu á hvolf hérna, rétt eina ferðina? Á sama tíma og lögfræðimenntaður Sjálfstæðismaður, Sigríður Andersen, segir á háskólafundi að best væri að draga dómnefndina inn í dómsmálaráðuneytið kemur í ljós að á öðrum Norðurlöndum er vægi dómnefnda miklu meira en hér tíðkast. Svipaða sögu er að segja af öðrum löndum sem við berum okkur gjarnan saman við. Hér erum við Íslendingar aftarlega á merinni og þurfum að taka okkur á. Hugmyndir Sigríðar eru augljóslega fjarstæða og greinilega eingöngu hugsaðar til að auka enn áhrif dómsmálaráðherra á skipun dómara. Dómarafélag Íslands hefur ályktað „að ráðherra beri við skipun í dómaraembætti að hafa hliðsjón af umsögn dómnefndar þótt hann sé ekki bundinn af henni.“ Í sama streng hafa tekið fjölmargir lögmenn og fræðimenn. Samt er þverskallast.
Við þetta verður ekki unað lengur. Almenningur í landinu verður að rísa upp og taka stjórnmálamennina á beinið. Það þarf að fara fram endurmat á pólitískri starfsemi í landinu og treysta stoðir lýðræðisins. Stjórnmálamenn hafa ítrekað hagað sér með þeim hætti að þeim er ekki lengur treystandi. Kjósendur þurfa að setja stjórnmálamönnum strangar siðareglur og sjá til þess að þeir hafi þær í heiðri.
Fulltrúar mínir á Alþingi, í ríkisstjórn eða í sveitarstjórn eiga ekki að ljúga, hafa rangt við, þjóna einkavinum, snúa út úr og stunda orðhengilshátt í orðræðu, beita bellibrögðum og fara á svig við vandaða stjórnsýslu. Ég hafna valdabrölturum, þeir hafa ekki mitt umboð til skrípaláta og oflátungsháttar. Mínir fulltrúar eiga að vinna fyrir fólkið sem kaus þá - fyrir almenning í landinu og ekki sinna öðrum hagsmunum. Verði þeim á í messunni eiga þeir að segja af sér og aðrir fulltrúar að koma í þeirra stað.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-68019168968131480702007-05-14T21:05:00.000+00:002007-05-14T22:36:11.761+00:00Nú reynir á GeirNú er spennandi kosninganótt að baki og niðurstaðan liggur fyrir: stjórnin hélt velli með mjög nauman meirihluta og sú staða skrifast aðallega á meingallað og óréttlátt kosningakerfi.
Sigurvegarar kosninganna eru Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin grænt framboð, en Samfylking og Framsókn biðu ósigra. Samfylkingin tapaði í öllum kjördæmum og hlýtur það að vera áhyggjuefni, jafnvel þó benda megi á að flokkurinn hafi stöðugt unnið á undir lok kosningabaráttunnar. Lexía Samfylkingarinnar hlýtur að vera sú að nú eigi menn að snúa bökum saman og vinna vel saman sem órofa heild allt næsta kjörtímabil.
Útreið Framsóknar hefur tæpast verið verri frá upphafi vega. Fyrir kosningarnar höfðu ýmsir framsóknarmenn, m.a. tveir ráðherrar flokksins (Guðni og Valgerður) talað mjög skýrt um að flokkurinn yrði að fá góða útkomu úr kosningum til að geta haldið áfram stjórnarþátttöku með Sjálfstæðisflokknum. Það kom því ekki á óvart á kosninganótt að formaður Framsóknarflokksins talaði í þá veru að það væri tæpast lýðræðislegt fyrir flokkinn að setjast í stjórn eftir þá útreið sem var að birtast í tölum næturinnar. Hitt var býsna undarlegt að heyra bæði hann og Guðna varaformann hringsnúast í afstöðu sinni og tala í þveröfuga átt eftir að ljóst var að stjórnin félli ekki. Þetta er auðvitað afskaplega ótrúverðugt og sýnir niðurlægingu Framsókn hvað skýrast. Þar er engin reisn eftir og því er kannski bara best að Framsókn renni sitt skeið á enda og minnki enn meira eða hverfi alveg í næstu kosningum.
Mér finnst ekki koma til greina að mynda vinstri stjórn (Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknar) við þessar aðstæður. Framsókn var hafnað og á ekki að taka þátt í stjórn. Samfylking og Vinstri grænir gagnrýndu Framsókn réttilega og eiga því ekkert að biðla til þeirra með eitt eða neitt. Sterkasta stjórnin yrði auðvitað stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og ef rétt væri á spilum haldið gæti slík stjórn orðið býsna farsæl. Forspár Ögmundar Jónassonar um slíka stjórn eru fráleitar og með öllu órökstuddar.
Þá er komið að því; kosningadagurinn er runninn upp og komið að því að kjósa. Það vefst auðvitað ekki fyrir mér.
Kosningabaráttan hefur ekki verið af því tagi að menn gangi að kjörborði blóðugir upp til axla eftir hatrömm átök og það kannski eins gott. Samt eru ýmsar rósir sem finna má í fjólugarði kosningabaráttunnar, eða eigum við kannski að segja arfaklær. Heimskulegasta orðræða þessa tímabils var án efa bloggfærsla Ástu Möller um forseta Íslands. Úreldingarverðlaunin fær Geir Haarde fyrir klisjuna um að vinstri stjórn væri það versta sem fyrir gæti komið. Þessi orð virka sérstaklega ankannalega úr munni Geirs sem öðrum fremur ber ábyrgð á háum vöxtum, mikilli verðbólgu og skattpíningu okkar minnstu bræðra. Hann hefur ekki einu sinni menntunarskort sér til afbötunar því hann er hagfræðingur - en stóð að þessu samt! Svo spyr hann í heilsíðuauglýsingum hverjum sé treystandi. Svarið liggur í augum uppi: ekki honum, sem hafði tækifærin og nýtti þau ekki.
Nei, það vefst ekki fyrir mér hvað á að kjósa. Ég er stoltur jafnaðarmaður og kýs þess vegna Samfylkinguna. Hér að ofan er raunsæ spá mín um úrslit kosninganna, en ég vona að Samfylkingin fái jafnvel meira fylgi en þarna er sýnt og að útreið Framsóknar verði sýnu verri en hér er spáð.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-13219256793414683662007-04-17T08:33:00.000+00:002007-04-17T09:03:44.492+00:00Vinir KáraÓli Björn Kárason bloggar um viðtal Ólafs Teits Guðnasonar við Kára Stefánsson sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag. Í viðtalinu gagnrýnir Kári ríkisstjórnina harðlega og segir orðrétt: „Með vini eins og þessa ríkisstjórn þarf maður ekki á neinum óvinum að halda.“
Bragð er að þá barnið finnur. Kári segir ríkisstjórnina hafa misst kjark til að standa að gerð miðlægs gagnagrunns og einnig lofað ríkisábyrgð á skuldabréfum, sem síðan „dróst bara og dróst og dróst“ segir Kári og á endanum seldi ÍE sín eigin skuldabréf án ríkisábyrgðar.
Þessi mál voru auðvitað umdeild á sínum tíma og fróðlegt að vita loks lyktir þeirra beggja eins og Kári túlkar þær. En er ekki augljóst af þessari atburðarás hvernig Davíð ætlaði að hygla sínum gamla skólabróður en kom því ekki í gegn þrátt fyrir allt. Ekki er ólíklegt að arftaki hans hafi staðið á bremsunni og haft betur þegar upp var staðið. En hvernig sem því kann að vera varið, eru þetta þó ágæt dæmi um hringlandahátt ríkisstjórnarinnar. Það er vissulega vafasamt að gefa einkafyrirtækjum fyrirheit um ríkisábyrgð á lánum. En verða menn ekki að standa við það sem þeir lofa? Allir vita reyndar að stjórnmálamenn rísa sjaldnast undir þeirri kröfu. Þeir eru alltaf stikkfrí.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-24084697155094691792007-04-15T10:26:00.000+00:002007-04-16T07:55:48.815+00:00........ í lauginniÞá er auglýsingaherferð Framsóknar hafin. Í blöðunum sjást litlar auglýsingar, sem síðan eiga vafalaust eftir að stækka þegar nær dregur kosningum. Í þeirri auglýsingu sem spiluð hefur verið í sjónvarpi að undanförnu er megináhersla lögð á formanninn. Auglýsingin er hefðbundin og frekar hallærisleg. Þegar formaðurinn damlaði í Laugardalslauginni kom strax upp í hugann blúslag sem dúettinn Súkkat flutti eftirminnilega hér fyrir nokkrum árum. Ég er viss um að þeir félagar myndu leyfa Framsóknarmönnum að leika það undir sundæfingum formannsins - sem væri auðvitað mjög viðeigandi.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-82373194208008519322007-04-13T17:05:00.000+00:002007-04-13T17:18:42.705+00:00Mbl.is er áróðursvefurLandsfundur Samfylkingarinnar var settur kl 16:00 í dag. Um klukkutíma síðar var hvergi á hann minnst á fréttaforsíðu Mbl.is. Á sama tíma var bein útsending frá fundinum á Vísir.is. Þessu til sönnunar má sjá hér skjámyndir af fréttaforsíðum beggja vefjanna (Mbl.is og Vísir.is) sem teknar voru með forritinu url2bmp kl 16:58 og 17:00 í dag.
Það hefur löngum verið sagt að Morgunblaðið ljúgi með þögninni og fréttavefur blaðsins sannar þetta núna eftirminnilega. Það er gengið svo langt í áróðrinum (þögn er líka áróður) að fréttamatið er lagt til hliðar ásamt fagmennskunni. ISS!Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-63263349392358157382007-04-07T10:59:00.000+00:002007-04-07T11:08:12.905+00:00Íbúakosningarnar í HafnarfirðiNýlega fór fram kosning meðal íbúa Hafnarfjarðar um tiltekna deiliskipulagstillögu. Bæjarstjórnin hafði djörfung og dug til að brjóta blað og gefa íbúunum kost á að láta álit sitt í ljós á máli sem vitað var að skipti þá miklu. Könnun sýndi að um 90% íbúanna kunnu vel að meta þessa ákvörðun og ég trúi því að Hafnfirðingar muni sýna þann félagsþroska að taka niðurstöðunni með stóískri ró.
Það hefur talsvert borið á því í þjóðfélagsumræðunni að menn fari fram með þvætting sem hver étur svo eftir öðrum eins og um heilagan sannleik væri að ræða. Þannig var því haldið fram hér um árið að ákvörðun forseta Íslands um að neita að samþykkja umdeild fjölmiðlalög myndi leiða af sér stjórnarkreppu. Þó að margir legðu sér þessi orð í munn á þeim tíma, vita nú allir að þetta var bull.
Í aðdraganda íbúakosninganna í Hafnarfirði gáfu bæjafulltrúar Samfylkingarinnar ekki upp afstöðu sína til fyrirliggjandi skipulagstillögu. Það var auðvitað afskaplega eðlilegt og hefði farið betur á að aðrir bæjarfulltrúar hefðu fylgt fordæmi þeirra því hlutverk bæjaryfirvalda var eingöngu að koma kosningunni á og setja um hana leikreglur og það var gert. Atkvæðisbærir Hafnfirðingar voru síðan einfærir um að mynda sér skoðun á álitaefninu út frá sínum hagsmunum og þurftu auðvitað ekki á hjálparhönd frá bæjarfulltrúum að halda til að ljúka því verkefni. Þetta sér hver meðalgreindur maður. Samt kemur einhver bullukollurinn og fer að fimbulfamba um kjarkleysi, hjásetu, að „skýla sér á bak við íbúalýðræði“ og ég veit ekki hvað. Og áður en við er litið étur þetta hver upp eftir öðrum án þess að reynt sé að styðja þessar staðhæfingar með rökum. Svona orðræða er auðvitað ekki boðleg og dæmir sig sjálf – úr leik. Þeir sem hana stunda gera ekki miklar andlegar kröfur til sjálfra sín.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-41394698875953877492007-03-01T23:11:00.000+00:002007-03-02T00:42:01.019+00:00Allt er vænt sem vel er græntÍ tilefni af forsíðu Moggans fyrir skemmstu:
Kosningar nálgast og nú þarf að brýna brandinn
og búast þeim klæðum sem helst geta fylgi rænt.
Það hvítnar í báru og eggjaður gerist nú andinn
og illfyglið smælar á forsíðu Moggans - grænt.
Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-7538264.post-90900644632115656212007-02-23T11:37:00.000+00:002007-02-23T15:31:08.544+00:00Klámhundar á SöguHollenski klámvefurinn FreeOnes.com hugðist halda vetrarhátíð (Snowgathering) á Íslandi 7.-11. mars 2007 og hafði fengið inni á Hótel Sögu fyrir þá sem hugðust þaka þátt. Fréttablaðið í dag (2007.02.23, bls 36) greinir frá því að um 60 hafi bókað þar gistingu.
Í gær tók stjórn Bændasamtakanna, en bændur eiga Hótel Sögu (Bændahöllina), þá ákvörðun að hætta við þessi viðskipti og rökstuddi ákvörðun sína með tilvísun til harðrar umræðu gegn fyrirhugaðri vetrarhátið frá stjórnmálamönnum, einkum borgarstjóranum í Reykjavík.
Þetta mál er dæmigert fyrir umræður í íslensku samfélagi þar sem mál eru rædd og rekin af tilfinningalegum trúarhita fremur en af yfirvegun og rökhyggju. Þessu hefur enginn lýst betur en hinn snjalli rithöfundur Halldór Laxness (Innansveitarkróníka, 9. kafli):
Því hefur verið haldið fram að íslendíngar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.
Margar áreiðanlegar vísbendingar eru til um að í skjóli kláms þrífist alls konar viðbjóður, eins og nauðung og mansal, sem öll samfélög vilja vera laus við. Þó er engin leið að fullyrða að þessi starfsemi sé öll þannig og enn síður að þeir sem vildu vera gistivinir Sögu séu fantar og glæpamenn upp til hópa. Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að þessi hópur hefði neina ólöglega starfsemi í hyggju og það er grundvallaratriði í okkar réttarkerfi að menn eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir „ferðaiðnaðinum mikill vandi á höndum ef nauðsynlegt reynist að kanna bakgrunn hvers einasta ferðalangs sem hingað kemur en þeir eru um 400 þúsund á ári“ og spyr „hvort von sé á reglugerð frá stjórnvöldum um hverjir séu æskilegir hér á landi og hverjir ekki?“ (Fréttablaðið, 2007.02.23, bls 36). Þannig lítur málið út í augum venjulegs fólks sem stendur báðum fótum á jörðinni og er ekki heltekið af hysteríu.
Það sem er hlægilegt við þessa ákvörðun stjórnar Bændasamtakanna er að á hóteli þeirra eiga gestir kost á að velja klámrás í sjónvarpinu og gætu þess vegna horft á hina burtreknu gesti FreeOnes.com vinna vinnuna sína. Svo ætla bændur, NÚNA, að spyrja Radisson-SAS hvort ekki megi loka klámrásinni! Af hverju gengust þessir heilögu menn inn á þetta fyrirkomulag í upphafi?
Það sem er ógeðfellt við þessa niðurstöðu er að hún er byggð á hysteríu sem greip um sig í umræðunni og stjórnmálamenn á atkvæðaveiðum, popúlískur borgarstjóri og hagsmunasamtök í ímyndarvanda glúpnuðu eða ákváðu að fiska í gruggugu vatni. Fyrir þessari ákvörðun liggja engin eðlileg rök. Maður veltir fyrir sér hvort að þetta hefði gerst ef ekki hefðu alþingiskosningar staðið fyrir dyrum eða langur tími væri liðinn frá ákvörðun um stórfelldan stuðning af almannafé við hnignandi atvinnugrein og forsvarsmenn hennar þar af leiðandi ekki með skjálfta í hnjánum. Borgarstjórinn í Reykjavík er hins vegar bara einfaldur popúlisti sem kaupir vinsældir við öll tækifæri og hann sá þarna útsöludæmi sem hann gat meira að segja fengið pólitíska andstæðinga sína til að reikna með sér. En útkoman var röng.
Það getur ekki verið rétt að mismuna fólki eftir því hvað það tekur sér fyrir hendur á meðan sú starfsemi fer ekki í bága við viðurkenndar leikreglur samfélagsins. Á t.d. að banna samkomur homma og lesbía ef þeir sem hafa aðra kynhegðun æsa til andstöðu við slíkar samkomur? Það hefur gerst. Gæti það gerst aftur? Hvað getur ekki gerst þegar hysterían ræður för? Það eru áreiðanlega einhverjir af þeim sem hafa tekið þátt í vetrarhátíðarhysteríunni sem voru á móti meðferðinni á Falun Gong hérna um árið. Sjá þeir ekkert misræmi á ferðinni?
Það er við því að búast að harðsvíruð hagsmunasamtök eins og femínistar hafi hátt undir svona kringumstæðum, en menn mega ekki láta glepjast af hávaðanum. Það verður að vera system í galskapet, það er lágmarkskrafa sem gera verður til stjórnvalda og þeirra sem bjóða sig fram til að fara með almannavald. Það gengur ekki að aðhafast eitthvað tilviljanakennt eftir því sem byrinn blæs hverju sinni. Þetta lið mætti skoða hugleiðingar Tómasar Becket í leikverki T. S. Eliot, Murder in the Cathedral, þegar hann velti fyrir sér hvort aðgerðir hans stjórnuðust af þrá eftir eilífri gloríu sem fælist í píslarvættisdauða:
The last temptation is the greatest treason:
To do the right deed for the wrong reason.
Mig grunar að viljinn til að vera hollur undir meintan pólitískan rétttrúnað augnabliksins hafi hér vegið þyngra en skynsemi, leikreglur og sanngirni í þeirri niðurstöðu sem liggur fyrir. Ég óttast svona niðurstöður. Þannig gekk þetta fyrir sig í villta vestrinu: múgurinn æpti og einhver var hengdur. En það getur skjótt skipast veður í lofti og æpandi gærdagsins kann að vakna að morgni við að ól herðist að kverk.Benedikt Jónssonhttp://www.blogger.com/profile/11689894949158017433noreply@blogger.com0