Kosningar nálgast og nú þarf að brýna brandinn
og búast þeim klæðum sem helst geta fylgi rænt.
Það hvítnar í báru og eggjaður gerist nú andinn
og illfyglið smælar á forsíðu Moggans - grænt.
Því hefur verið haldið fram að íslendíngar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.
The last temptation is the greatest treason:Mig grunar að viljinn til að vera hollur undir meintan pólitískan rétttrúnað augnabliksins hafi hér vegið þyngra en skynsemi, leikreglur og sanngirni í þeirri niðurstöðu sem liggur fyrir. Ég óttast svona niðurstöður. Þannig gekk þetta fyrir sig í villta vestrinu: múgurinn æpti og einhver var hengdur. En það getur skjótt skipast veður í lofti og æpandi gærdagsins kann að vakna að morgni við að ól herðist að kverk.
To do the right deed for the wrong reason.
“The United States now considers its security to be gravely endangered by the actions and attacks of terrorists and because of various threats from countries governed by dictators and tyrants. It believes that support from this small country makes a difference... The declaration issued by the Icelandic Government on the Iraq dispute says that we intend to maintain the close cooperation we have had with our powerful ally in the West.Eins og sjá má er þarna heitið stuðningi Íslands sem m.a. felst í flugi inn í lofthelgi Íslands, heimild til afnota af Keflavíkurflugvelli, loforð um þátttöku í endurreisnarstarfi í Írak og loks pólitískum stuðningi við framkvæmd ályktunar Öryggisráðsins númer 1441, sem Bandaríkjamenn túlkuðu sem heimild til innrásar í Írak. Sú túlkun er afar umdeild eins og menn vita.
First of all, this involves flyover authorization for the Icelandic air control area. Secondly, the use of Keflavik Airport, if necessary. In third place, we will take part in the reconstruction of Iraq after the war ends. Fourthly, we expressed political support for Resolution 1441 being enforced after four months of delays."
-- Prime Minister Oddsson, March 18, 2003
„Ríkisstjórn Íslands eða einstakir ráðherrar innan hennar báru enga ábyrgð á innrásinni í Írak. Hún hefði verið gerð, hvað sem afstöðu íslenskra stjórnvalda leið. Það ber vott um yfirþyrmandi minnimáttarkennd eða ótrúlega mikilmennsku að telja sér trú um, að afstaða ríkisstjórnar Íslands hefði skipt einhverju um það, hvort ráðist yrði inn í Írak.“Hver hefur talið sér trú um að „ afstaða ríkisstjórnar Íslands hefði skipt einhverju um það, hvort ráðist yrði inn í Írak“? Getur Björn nefnt einhvern sem hefur gert það opinberlega? Þetta er auðvitað útúrsnúningur og bull. Gagnrýnt hefur verið að Ísland skyldi styðja innrásina og hvernig gengið var framhjá utanríkismálanefnd við þessa dæmalausu ákvarðanatöku. Engum hefur dottið í hug að afstaða Íslands hefði skipt neinu nema fyrir Íslendinga sjálfa. Hér er málflutningur gagnrýnenda þessarar afdrifaríku ákvörðunar afbakaður og affluttur að hætti Valhallarmanna. Er því eðlilegt að segja að í málflutningi Björns sé „valhallað“ réttu máli.
Í fréttinni segir Hannes að hefði hann „ákveðið að taka til varna í Englandi hefði hann að sjálfsögðu verið sýknaður enda hefði hann einungis sagt það sem væri satt og rétt; því hefði margoft verið haldið fram að Jón Ólafsson hefði auðgast á vafasaman hátt.“Enskur dómstóll hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að greiða Jóni Ólafssyni, kenndum við Skífuna, um 11 milljónir króna vegna ummæla sem Hannes Hólmsteinn lét falla á ráðstefnu norræna blaðamanna í Reykholti í október 1999 og birti síðan á heimasíðu sinni. Fjárnámskrafa Jóns til fullnustu dómsins verður tekin fyrir hjá sýslumanninum í Reykjavík í dag.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var það lykilatriði í málaferlum Jóns ytra að útdráttur úr erindinu var birtur á ensku á heimasíðu Hannesar Hólmsteins og af þeim sökum hefði myndast grundvöllur fyrir málaferlum í Englandi.
Alls hljóðar krafa Jóns Ólafssonar upp á 11 milljónir með kostnaði.
Af hálfu Hannesar Hólmsteins er kröfunni mótmælt og má gera ráð fyrir að málið verði útkljáð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn þarf m.a. að taka afstöðu til þess hvort skilyrði Lugano-samningsins séu uppfyllt en hann kveður á um að dómar í einkamálum í aðildarríkjum séu viðurkenndir á milli landa. Bæði Ísland og Bretland eru aðilar að sáttmálanum.
Heimild: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1161947